Blogg #2

Fimmtudagurinn

Við brennum malbik! Við tryllum lýð!

Dagurinn byrjaði vel, vaktir af Baldvini Esra þar sem við skeiðuðum saman strákarnir í Reykjavík! í fallegum bjálkakofa í Hornafirðinum, með ústýni yfir tignarlegan jökulinn. Ólýsanleg stund!

Gærkvöldið var eitthvað það almagnaðasta í sögu Sumargleðinnar. Eftir velheppnað Poppquiz þar sem sumarið var hinn rauði þráður sem batt spurningarnar saman skelltu strákarnir í Sudden Weather Change sér í gírinn og hófu leik á nýju lagi. Ég leyfi mér að segja, alveg ófeiminn, að lag þetta er með því albesta sem ég hef heyrt frá drengjunum. Alveg stórkostlegt! Ef mér skjátlast ekki þá sungu þeir, eins og Dinasaur Jr. forðum daga, um það að gubba og gráta. Settið þeirra var alveg skothelt, enda er hljómburðurinn í Pakkhúsinu alveg einstakur.

Swords of Chaos minntu einna helst á skipulagðar náttúruhamfarir, sviptivindar og eldingar. Alveg ótrúlega krarftmikið band með góða stjórn á geðveiki sinni.

Við Reykjavík! biðjum þolinmóðir eftir Hauki sem varð eftir í Reykjavík, eins magnað og það nú er þá komst hann á leiðarenda í tæka tíð. Það voru sannarlega fagnaðarfundir þegar týndi sonurinn skilaði sér í hjörðina. Til þess að fagna töldum við í nokkur vel valin lög. Oddur dansaði á typpinu, rauðhærð stúlka datt í gólfið og geiri fékk míkrafón í andlitið og það stórsér á honum.

Segja má með sanni að Hornafjörður sé uppáhaldsstaður okkar allra um þessar mundir. Heimafólk er til fyrirmyndar, makrílpaté-ið þeirra er það líka. Gott rafmagn, gott vatn og einkar fallegt bæjarstæði.

Þrjú orð til þess að ramma kvöldið inn, eitt orð frá hverri sveit:

Swords of Chaos: “ógeðslegt”

Sudden Weather Change: “viður”

Reykjavík!: “Genever”

Höfn í Hornafirði: Humarpylsur

B.kv.

Bóas

Nótur frá túrstjóra:

Myndir úr ferðinni er á heimasvæði okkar á facebook!!!

Það mun teljast til kraftaverka ef við fáum að gista aftur í fallegum smáhúsum tjaldstæðisins á Höfn.

Got something to say?