Blogg #1 – 15. júlí

Sumargleðin hófst í dag! Vei, var búinn að bíða í sirka ár eftir því.

Sumargleðin tók sig saman í andlitinu loks í dag og mætti galvösk í úbartsviðtal hjá Möggu Maack í góðum fílíng í. Skemmtilegt var það mjög enda Maggsterinn alltaf hress og í stuði.

Því næst var haldið á stað til Keflavíkur og rót, uppstilling kerfis og hljóðprufur hófust um 16hundruð. Mikill spenningur var innan hópsins og allir tilbúnir í gott geim næstu dagana. Nema Haukur úr Reykjavík! sem var að klára Grapevine og Kristján sem kom með flugi frá Ísafirði. Já, og svo gleymdum við Geira í Rvk! í rvk. En það var allt í lagi því við gleymdum líka posanum og Pétur fór og sótti þá báða.

Þar fundum við líka Billa, sérlegan atvinnuljósmyndara ferðarinnar, en hann hafði komið frá Lúndúnaborg fyrr um daginn. Eftir smá leit fannst hann í einum tvöföldum Vodka í glasi á Ránni.

Við borðuðum Ólsen Ólsen báta og reyndust þeir í flestum tilvikum vel nema að þau vildu ekki gefa okkur tilboð þó 15 stk. væru keypt. Nískupakk.

Um hálf níu hófst fyrsta poppquiz ferðinnar og var það vel.

Hellvar var fyrst á svið og voru með svaðalegt sett. Nýtt efni sveitarinnar er drulluþétt og Falsetto einhver mesti hittari sem undirritaður hefur heyrt á árinu. Vonandi að fólk fatti það með tíð og tíma.

Því næst voru Swords of Chaos og gerðu þeir gott mót. Þeir eru óræðna stærðin í Sumargleðinni þar sem þeir hafa ekki spilað mikið með Kima áður og hafa ekki gefið út plötu enn. Þeir voru ekkert að spara sig og dúndruðu beint í einhvert þéttasta sett sem menn muna. Hljóðið var svo þykkt að það sást. Nágrannar fengu hellur fyrir eyrun og allt það.

Sudden Weather Change voru geðveikir, eins og alltaf. Ef einhver sveit er betri tónleikaband á Íslandi þá er það líklegast Reykjavík!. Ísfirskir rústuðu kvöldinu að endingu og síðustu bifhárum tónleikagesta. Voru þeir flestir ánægðir með það. En hver er svo sem að biðja gamla viðkvæma karlmenn að koma á rokktónleika.

Við leggjum í hann á Höfn innan skamms og þar verður sko trallað og sprellað. Meir um það síðar. Einnig er von á myndasíðu. Fylgist með.

bestu kveðjur

Baldvin Esra, sumargleðisstjóri

Got something to say?