Blog #4 – Laugardagurinn

Ævintýrin gerast enn og þá aðalega á landsbyggðinni. Eftir velsótta og dúndrandi tónleika á Seyðisfirði þrusuðum við okkur til Vopnafjarðar þrátt fyrir fortölur sjónvarpsstjarna. Við lætum það ekki á okkur fá og fórum meiri að segja Hellisheiði eystri (sem ku vera hæsti fjallvegur landsins). Við komum seinnipart dags og tjilluðum þar í góðum gír með dúdda dyraverði og hann var sko ekki að fíla það að við værum að eyðileggja sjónvarpskvöldið hans. Bauð okkur meira að segja húsið frítt ef við værum búnir kl. 21. Við vorum að sjálfsögðu tilbúnir til að rokka og það í alla nótt og sögðum honum að eiga sig. Hins vegar var Sigga Dóra, menningarviti vopnafirðinga, í gríðar fíling og bauð okkur í eftirpartí heima hjá sér ásamt öllum tónleikagestum. Þar fengum samlokur og bjór ásamt því að taka lagið. Að sjálfsögðu voru aðeins góðir og gildir útileguslagarar leiknir, eins og major leagues, st. peters day og eitthvað fleira sem ég man ekki svo gjörla.

Á Vopnafirði gistum við í íþróttahúsi og satt best að segja var það slæm hugmynd hjá vopnfirðingum því rútan var full af gaurum á aldrinum 20-35 ára. Eins og allir vita eru gaurar á þessum aldrei allir ennþá 12 ára þegar þeir sjá bolta, trampólín og hástökksdýnu.

Anyways, stórslysalaust tókum við nokkrar stökkæfingar og blésum því næst til fótboltamóts. Mótið sigraði Reykjavík! og í öðru var Crewið.

Daginn eftir fórum við til Húsavíkur og það er nú saga að segja frá því

minni á myndir og annað á facebook. Það koma líka myndir hér þegar tími finnst til þess.

kveðja

baldvin

Got something to say?