Föstudagskvöldið var ævintýralegt, eins og við var að búast. Við lentum á Seyðisfirði um kl. 1600. Rót, uppstilling á kerfi og annað þvíumlíkt var komið í fastar skorður og við vorum eldsnöggir að þessu. Höfðum meira að segja tíma til að skreppa í sund og borða kjötsúpu hjá Krúttunum í LungA. Við byrjuðum svo tónleikana kl. 20 með nokkrum angurværum lögum frá heimasætunni Björt. Því næst mætti Biggímaus með nýja bandið sitt, Krónu. Skakkaparið Svavar og Bella Hressler glöddu okkur með heimabrugguðu jaðarpoppi sem Prins Póló (svavar sóló) og Létt á bárunni. Síðasta gestasveit kvöldsins voru heimamennirnir í Miri. Þeir eru varla gestir þar sem þeir eru með á síðari helming túrsins. Lænöpp Sumargleðinnar var svo á þá vegu að Reykjavík! þrusuðust í gegnum settið sitt rétt á eftir Miri, Sudden Weather Change trylltu svo lýðinn með hressilegu vinsældapoppi og að lokum stútuðu drengirnir í Swords of Chaos restinni af heilasellum áhorfenda með melódísku hávaðarokki sínu.
Svo stútuðum við okkar eigin heilasellum það sem eftir lifði kvölds og nætur.
Næsti viðkomustaður: Vopnafjörður. Meira um það síðar.
Minni á myndir og annað á Facebook síðunni okkar.
kveðja
Baldvin


