-Morðingjarnir gefa út sína 3ju breiðskífu, Flóttann mikla-
Flóttinn mikli, 3ja breiðskífa Morðingjanna, kemur út á vegum Kimi Records í dag. Platan inniheldur 11 lög sem mætti flokka sem popplög með pönk- og þungarokksívafi. Til að fagna þessum mikla áfanga í sínu lífi ætla Morðingjarnir að spila nokkur lög í versluninni HAVARÍ (Austurstræti 6) og mun útgefandi bjóða upp á léttar veigar við það tækifæri. Þessi gjörningur hefst kl. 17. Að sjálfsögðu verður platan á bjánalega góðu verði sem og eldri plötur snillinganna. Einnig verða þar frægir morðingjabolir til sölu.
Það mun semsagt ríkja morðingjagleði í Austurstræti á föstudag.
Tags: HAVARÍ, Morðingjarnir



