Nálgist plötu hér // Get free records here
Nú á vordögum eða u.þ.b. þegar fyrsta fulla tungl birtist eftir vorjafndægur má vænta fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar MIRI frá Seyðisfirði/Egilsstöðum. MIRI hefur starfað í nokkur ár fyrir austan en hefur aukinheldur troðið upp á tónlistarhátíðum í Reykjavík, s.s. eins og á Réttum og Iceland Airwaves oftar enn einu sinni. Ekki má svo gleyma hringferð MIRI manna um landið í fylgd Sumargleði KIMI-records síðasta ár, þar sem þeir fóru á kostum.
Tónlistaráhugamenn hafa beðið lengi eftir fyrstu breiðskífu MIRI og til að gera biðina ögn bærilegri fram yfir vorjafndægur brugðu MIRI á það ráð að fá sýna eftirlætis tónlistarmenn hér á landi til að endurhljóðblanda lag af væntanlegri skífu. Miri og Kimi Records mun gefa þá uppskeru út á netinu, hér á www.kimirecords.net. Þessi “rímix” skífa er að sjálfsögðu ókeypis og án allra skuldbindinga. Meðal þeirra listamanna sem koma að rímixinu eru FM Belfast, Biogen, Ruxpin, Quadruplos og Retro Stefson.
//
Miri will release their first album on Kimi Records in April. To celebrate this fact, the guys in Miri and the kids at Kimi Records are giving everybody a special sneak peek at the album. Miri got some friends and local remix heroes to remix a song from the forthcoming album. These remixes are now free for download on the link displayed above and comes with no strings attached.
Miri – rmx ep
- Hamingjulagið í átta tilbrigðum -
1. Retro Stefson rmx
2. Goblins rmx
3. Ruxpin rmx
4. Enkidu rmx
5. Muted rmx
6. Quadruplos rmx
7. Biogen rmx
8. Fm Belfast rmx (aka. Cover of Help me)


