Sumargleðin 2009 | Loka glugga

Swords of Chaos

gitarbattlsenda

Swords of Chaos er fjórmennt band frá Reykjavík sem lagt hefur af stað til þess að eyða samhljóm og frið í heiminum. Eftir að hafa vakið athygli fyrir hálsbrjótandi hljómleikahald út um allt Ísland munu Swords of Chaos nú halda áfram að spýta út sínum einstaka samhristing af metal og harðkjarna tónlist.

Swords of Chaos hafa starfað síðan elstu meðlimir muna eftir og hafa farið í gegnum mörg ferli í leit sinni að hinum fullkomna hljóm. Hljómsveitarmönnum vefst þó tunga um tönn við skilgreiningu hins ofbeldisfulla hljóms svo eyru hlustenda verða að vera dómarar í þessu máli.

En leit Swords of Chaos að eyðileggingu hefur nú verið sett á bið til þess að festa hljóm þeirra á fyrsta geisladisk sveitarinnar. Upptökur munu klárast í Ágúst og verður þetta einstakt fyrsta tækifæri til þess að heyra hljóm sveitarinnar á plasti!

Got something to say?