Sumargleðin 2009 | Loka glugga

Skakkamanage

skakki2

Skakkamanage samanstendur af hjónakornunum Svavari Pétri og Berglindi, en þau stofnuðu sveitina veturinn 2003. Þá hefur Þormóður Dagsson trommað með þeim og Örn Ingi spilað á bassa en fleiri gestaleikarar komið við sögu í gegnum tíðina. Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og hafa þau nú gefið út 2 breiðskífur, sú fyrri Lab of love kom út árið 2006 og All over the face sem kom út á seinasta ári. Þau hafa hlotið mikið lof fyrir einstakan hljóm og persónulegar lagasmíðar sem eru aldrei fjarri góðu gamni. Það er einstakt að sjá þau lifna við á sviði og það fer engin ósnortin af tónleikum með þessari frábæru sveit.

www.skakkapopp.is

http://www.myspace.com/skakkamanage

skakki

Got something to say?