Sumargleðin 2009 | Loka glugga
Hljómsveitin Reykjavík! var stofnuð af fimm glöðum einstaklingum frá Snæfellsnesi árið 1968, og varð hún fljótt vinsæl þar í sveitinni. Strákarnir spiluðu þá hresst rokk og ról, aðallega ábreiður eftir vinsæla tónlistarmenn frá þeim tímum – bítlana, stóns, kinks og fleiri. Fljótlega kynntust þeir þó tónlist klassískra tónlistarmanna frá fyrri öldum sem og samtímamönnum; Vivaldi, Stravinskí, Debussy og Stockhausen til að nefna nokkra, og fór tónlist þeirra smátt og smátt að verða fyrir áhrifum þeirra. Nú í dag eru þeir með virtari hljómsveitum Íslands og hafa meðal annars troðið upp ásamt London Fílharmóníunni, Sinfóníuhljómsveit Boston, Kammersveit Kommúnistaflokksins í Sjanghæ og hituðu upp fyrir Mike Oldfield á tónlistarferðalagi hans um Evrópu árið 1984.