Sumargleðin 2009 | Loka glugga

Miri

miri3

Í Miri hafa þeir Árni Geir, Óttar, Ívar Pétur og Hjalti Jón  sameinast um að spila af þrálátri og einlægri væntumþykju hver fyrir öðrum og tónlist sinni síðan árið 2005.

Þeir hafa einstakan hljóm sem hefur verið borin saman við allt frá Shellac til Bítlanna.

Þeir aðhyllast ýmsar stefnur og strauma en hafa þó sinn sérstæða, persónulega hljóm sem hver og einn þeirra félaga færir að borðinu.

Miri hafa verið stafræknir í nokkur ár með hléum en náðu þó að vekja mikla ánægju tónlistaráhugamanna með E.P. plötu sinni Fallegt þorp og hafa einnig fengið mikið lof fyrir kraftmikla og safaríka tónleika sem enginn fer ósnortin af..

Loksins, loksins, loksins er fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar að verða að veruleika en upptökustjóri breiðskífunnar verður enginn annar en Curver Thoroddsen og það er verður spennandi að fylgjast með strákunum í Miri á næstunni.

http://www.myspace.com/mirimusic

miri1

Got something to say?