Sumargleðin 2009 | Loka glugga

FM Belfast var stofnuð árið 2005 og hafa vinsældir þeirra bara aukist seinustu ár. Sveitin samanstendur af Árna Rúnari hlöðverðssyni aka Árni +1, Lóu Hlín Hjálmtýrsdóttur og Árna Vilhjálmssyni. Þó spila margir gestaleikara rog velunnarar sveitarinnar oft með þeim og orðið á götunni segir að það sé hrein upplifun að sjá þau á sviði.
Þau gáfu út plötuna How to make friends árið 2008 og hefur hún selst í yfir 4000 eintökum ásamt því að vera valin inn á lista þjóðarinnar yfir 100 bestu plötur Íslandssögunnar. Sveitin hyggst gefa plötuna út í Evrópu og fylgja henni á eftir með tónleikaferðalagi seinna árs 2009.
